Hestamannafélagið Skuggi Velkomin á heimasíðu hestamannafélagsins Skugga. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Færslur: 2016 Maí09.05.2016 22:23Auglýst eftir sjálfboðaliðumLandsmót hestamanna hafa í áranna rás verið borin uppi af óeigingjörnu framlagi sjálfboðaliða úr hestamannafélögum landsins. Sami eldmóður og hugsjón einkenna starfið í dag og í upphafi og margir sjálfboðaliðar gefa vinnu sína ár eftir ár. Gífurlegur undirbúningur liggur í að skipuleggja Landsmót og til að mæta kröfum nútímans um aðbúnað og skipulag reisum við heilt þorp fyrir allt að 15.000 manns. Framlag sjálfboðaliða er því gríðarlega mikilvægt og skiptir höfuðmáli til að gera umgjörð mótsins sem glæsilegasta. Sjálfboðaliðar sem taka þátt í Landsmóti vinna a.m.k. þrjár vaktir á meðan á mótinu stendur. Þeir sem eru áhugasamir geta þó að sjálfsögðu tekið að sér fleiri vaktir því verkefnin eru næg. Hver vakt varir í 6 klukkustundir og er sjálfboðaliðum skipt niður í hópa sem fá síðan úthlutað ákveðið ábyrgðarsvið eða verkefni. Nánari upplýsingar um sjálfboðaliðastarfið má finna hér Til að sækja um þarf að fylla út umsókn og senda góða andlitsmynd með umsókninni á johanna@landsmot.is Umsóknarfrestur er 15. maí 2016! Skrifað af Kristján Gíslason 09.05.2016 08:37Umsókn um beitarhólfUmsóknir um beitarhólf fyrir árið 2016 skulu berast skriflega til beitarnefndar Skugga fyrir 16. maí n.k., í netföng: dila@simnet.is, Ólafur Þorgeirsson (899 6179) habbasigga@simnet.is, Andrés Jóhannsson (860 9030) Í umsóknum skal tilgreina fjölda hrossa sem sótt er um fyrir, í sumarbeit, í haustbeit eða í heilsársbeit. Mikilvægt er að umsóknir séu komnar til beitanefndar í síðasta lagi 15. maí, n.k., annars er ekki tryggt að menn fái beitarhólf. Skilyrði fyrir úthlutun, er eins og áður, að gengið sé frá beitarsamningi og greiðslu beitargjalds áður en beitartími hefst, en skv. samningi við Borgarbyggð er það 10. júní, ár hvert.
Beitarnefnd Skugga Skrifað af Kristján Gíslason 07.05.2016 23:03ArionbankamótiðDagskrá morgundagsins
Skrifað af Kristján Gíslason 04.05.2016 22:39Úr reglugerð um velferð hrossaMeð hækkandi sól þá setja margir hesteigendur hross sem eru á húsi út í gerði og hafa þau þar jafnvel daginn. Því er rétt að minna á 10. grein reglugerðar um velferð hrossa en þar er m.a. fjallað um vatn og brynningu. 10. gr. Fóðrun, beit og brynning. Hross skulu hafa aðgang að fóðri a.m.k. tvisvar á sólarhring og skal aðgangur að gróffóðri aldrei vera minni en sem svarar til 4 kg af þurru heyi, daglega, fyrir hvert hross. Fóður skal að magni, gæðum og næringarinnihaldi fullnægja þörfum hrossa til vaxtar, viðhalds og notkunar. Hross skulu hafa aðgang að hreinu og ómenguðu drykkjarvatni eða snjó. Óheimilt er að hafa hross án vatns lengur en 6 klst. og án fóðurs lengur en 14 klst. Óheimilt er að hafa folaldshryssu án vatns eða fóðurs lengur en 2 klst. Forðast skal allar snöggar fóðurbreytingar og aðeins skal nota óskemmt fóður. Skrifað af Kristján Gíslason 04.05.2016 21:58Firmakeppnin - úrslitinFirmakeppni Skugga 1. maí 2016 Hér eru úrslitin frá Firmakeppninni, Nafn keppenda og fyrirtæki/einstaklingur Barnaflokkur: 1. Aníta Björk Björgvinsdóttir - Júlli Jóns vöruflutningar 2.
Katla
Halldórsdóttir - Bjarni Guðjónsson 3.
Andrea
Ína Jökulsdóttir - HSS-verktak ehf 4. Elín Björk Sigurþórsdóttir -
Bifreiðaþjónusta Harðar Unglingaflokkur: 1. Húni
Hilmarsson - Brugghús-Steðja 2. Berghildur
Reynisdóttir - Kræsingar 3. Arna Hrönn
Ámundadóttir - Borgarverk 4. Sólveig
Sigurbjörg Sæmundsdóttir - Landlínur 5. Hreiðar Þór
Ingvarsson - Hvannes ehf Ungmennaflokkur: 1.Máni
Hilmarsson - Límtré-Vírnet 2. Þorgeir
Ólafsson - Reynir Magnússon 3. Sigrún Rós
Helgadóttir - Vatnsverk, Guðjón &
Árni 4. Berglind Ýr
Ingvarsdóttir - Hópferðaþjónusta
Sigurðar Þorsteinssonar 5. Gyða
Helgadóttir - Gámaþjónusta Vesturlands Kvennaflokkur: 1. Iðunn Silja
Svansdóttir - Kaupfélag Borgfirðinga 2. Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir - Atlantsolía 3.Elísabet
Fjeldsted - Grillhúsið 4. Heiða Dís
Fjeldsted - Þorsteinn Oddur Stefán
Logi Haraldsson Karlaflokkur: 1. 1. Þórður
Sigurðsson - Halldór Sigurkarlsson 2. 2. Helgi
Baldursson - Mýrarnaut 3. 3. Ámundi
Sigurðsson - Sjúkraþjálfun Halldóru 4. 4. Björgúlfur
Björnsson - Sigurður 5. 5. Helgi
Gissurarson - Stefán Logi Haraldsson Skrifað af Kristján Gíslason 02.05.2016 23:11Firmakeppni SkuggaFirmakeppnin fór fram þann 1. maí sk. venju. Þátttaka var með ágætum og veðrið frábært. Að lokinni keppni þá var glæsilegt kaffihlaðborð í félagsheimilinu sem fjölmargir nutu. Allar myndir sem fylgja eru teknar af Maríu Magnúsdóttur. Því miður vantar mynd af pollaflokknum. Hér eru þáttakendur í barnaflokki - sigurvegarinn Aníta Björk Björgvinsdóttir er lengst til hægri. Unglingaflokkur - sigurvegarinn Húni Hilmarsson lengst til hægri. Ungmennaflokkur - sigurvegarinn Máni Hilmarsson annar frá hægri. Kvennaflokkur - sigurvegarinn Iðunn Svansdóttir í miðjunni Karlaflokkur - sigurvegarinn Þórður Sigurðsson í miðjunni. Skrifað af Kristján Gíslason
Flettingar í dag: 123 Gestir í dag: 67 Flettingar í gær: 291 Gestir í gær: 50 Samtals flettingar: 1568745 Samtals gestir: 181081 Tölur uppfærðar: 20.4.2018 06:27:20 |
clockhere Eldra efni
Tenglar |
© 2018 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is